|
|
26.12.2009 17:39:54 / zetabeib
Gleðileg Jól og farsælt komandi ár!
»
04.12.2009 00:33:41 / zetabeib
Já látum okkur nú sjá....
Það er komin Desember...alveg óforvarendis! Jólin á næsta leyti og prófatíð í fullu fjöri, nóvember leið á stjarnfræðilegum hraða, ég ætlaði að gera alveg fullt áður en Desember kæmi og prófin byrjuðu! Oh well, maður er byrjaður að plögga jólagjafir og það verður að segjast að það er ekki eins gaman að versla á Íslandi og í London! Það er kannski ástæðan fyrir því að slatti af því sem ég er að versla kemur frá netverslunum í útlöndum. Ég ætti kannski að skammast mín fyrir að versla ekki íslenskt og styrkja okkar kreppuhrjáða land, en að versla eitthvað á Íslandi er eins og láta lemja sig í hausinn og borga fyrir það, ég reyni að gera það sem minnst, geðheilsu minnar vegna. En, þrátt fyrir að ég sé ekki búin að skreyta, né baka neinar smákökusortir og ekki svo mikið sem byrjuð að pæla í jólakortunum þá er ég í það minnsta byrjuð að hlusta á jólalög og detta í fílinginn. Á laugardaginn fer maður í laufabrauðsgerð, sem ég hlakka mikið til, hef ekki getað gert það síðan 2004 & svo á Sunnudaginn, ásamt próflestri, held ég á Frostrósatónleika með Gullu & Birnu, sem að ég hef heyrt að sé rosalega jólalegt og skemmtilegt!
En já, svo er það hluturinn sem að er það minnst skemmtilega við Desember þetta árið...próf! Ég hef ekki þurft að fara í próf í Desember í háa herrans tíð, í MA voru þau jú alltaf í Janúar, ég tók reyndar nokkur próf í des 04 þegar ég var i fjölmiðlafræði í HA, en þau voru búin svo snemma! Þessi 5 sem ég fer í hjá HÍ ná að teygja sig yfir góðan part hátíðarlausa hluta mánaðarins, þe hlutanum sem maður þarf til að undirbúa sjálfan hátíðarhlutann. En það er svosem ekkert við því að gera, it´s the price of education!
Ég hef þegar glímt við fyrsta prófið, í Breskri Menningarsögu, sem var einnig eina 100% prófið & eina fagið þar sem ég hafði ekki lesið neitt alla önnina. Sem var svosem bara hroki, mér fannst ég bara vita svo mikið um Breska menningu og ómenningu eftir að hafa eytt rúmum 3 árum í London að mér fannst fáránlegt að þurfa að lesa um það. Ég gerði það þó á mánud. & þriðjudag og tók svo prófið í gær, miðvikudag. Mér gekk ágætlega og verð að brjóta odd af oflæti mínu og viðurkenna að ég lærði ýmislegt af skólabókunum, svosem að skilnaðartíðnin í Bretlandi er 4 af hverjum 10, lávarðadeild breska þingsins er svo að segja valdalaus & að konur þar máttu ekki læra til prests fyrr en 1994! Næsta próf er á mánudaginn og það er í fagi sem heitir Mál & Maður og fjallar um ýmislegt tengt máli, málfræði, hreimum & því hvernig mannskepnan lærir tungumál. Ég mun eyða bróðurpartinum af næstu dögum í að rifja upp allt sem ég hef lært um það, það gæti verið verra býst ég við, ég gæti verið að læra um vinnulag og aðferðir í hugvísindum! Það próf er ekki fyrr en þann 17, þann að ég slepp frá því í bili! Það telst reyndar ótrúlegt en satt að fagið sem mér finnst leiðinlegast, eða í það minnst jafnleiðinlegt og hljóð- & orðsetningafræði, er fagið sem ég er að standa mig hvað best í, amk ennþá. Eftir miðsvetrarpróf & verkefni sem saman giltu 50% einkunnarinnar, er ég komin með rúma 4 & það verður að teljast ansi góð byrjun!
En núna er komið nóg af blaðri, þetta er orðinn heillangur pistill, ég býst ekki við að blogga meira en einu sinni enn það sem eftir er árs, þangað til og alltaf verið góð við hvort annað....hvort sem þið eruð í snjóslabbinu hérna fyrir norðan, vetrargolunni í RVK, haustkaldanum í Danmörku eða jafnvel úti á hafi! Jólaleg faðmlög og kossar, Gústa UppteknaSan!
»
28.10.2009 17:52:34 / zetabeib
Jæja,Er kannski tími á að rita nokkur orð!?Ég er komin heim úr góðri ferð til Dk, var verslað og skoðað og heimsótt ættingja og vini víðsvegar um Jótland! Eyddi miklum tíma í lestinni, Svansa reyndi meira að segja að spilla óflekkuðum lestarferli mínum með því að kaupa eitthvað allt annað en lestarmiða þegar við skruppum til Holsterbro og það var ekki nema fyrir okkar ótrúlega heillandi rútínu sem afskaplega glórulausir ferðamenn að lestarvörðurinn aumkaði sig yfir okkur og hætti við að sekta okkur um 600 krónur danskar!Eftir það fór ég beint í miðsvetrarprófin sem að gengu ágætlega bara og ágætt að þau séu að baki. Svo hefur það verið vinna og lærdómur eftir það og nú fer að líða að jólaundirbúningi!Í ár verða jólakortin föndruð og það á eftir að taka tímann sinn og svo þarf ég að finna út úr því hvað ég get gefið fólki þessi fyrstu jól sem ég þarf að versla á Íslandi!Svo er maður komin með kort í ræktina og er að byrja að synda aftur nokkrum sinnum í viku, þannig að fötin passi betur í allan vetur! Annars er allt ljómandi að frétta, New Moon bíómyndin er handan við hornið og þess á milli er Glee tilvalinn til þess að lýsa upp skammdegið! Haustkveðjur,Gústa LestarSan
»
11.09.2009 06:09:01 / zetabeib
Jæja... það hefur ekki liðið svona langt milli blogga ever held ég!Ég er officially orðin 26 ára, get ekki sagt að ég finni á mér mikinn mun! Ég er annars ekkert búin að vera að gera nema vinna! Fékk heimsókn frá Balla og fór í smá skemmtireisu til Rvk í ágústbyrjun! Er búin að vera að vinna í Vín, Bakkahlíð og svo úti í Laufási! Já það er sko engin lognmolla!Vegna allra þessara vinnustunda hef ég lítið viðhafst! Gerðist þó húsmóðurleg og sultaði í fyrsta sinn um ævina! Rifsberjahlaup, bláberjasulta og rifsberjachilli! Nýjasta tilraunin er svo bláberjavodka, ég læt ykkur vita eftir mánuð hvernig það gekk!  Ég verð með 40 prósent vinnu í vetur á Bakkahlíð, auk einstakra vakta út í Vín og já svo er möguleiki að ég verði dregin inn í afleysingar á vistinni með mútter aftur!Annars er svosem nóg framundan, brúðkaup um næstu helgi hjá Sunnu og Geira, ég er víst veislustjóri, ég kvíði því ekkert, nei nei! Stend bara upp og held ræðu fyrir 70 manns, no worries.....eða þannig!  Svo er það skemmtireisa til Dk, vika í chilli og verslun og hangsi með Svönsu og kíki á sætilíusinn hann Ísak Örn og foreldra, sem og er planið að kíkja til Gullu frænku.Annars er búið að fjölga í famelíunni síðan ég bloggaði síðast, litli tröllkallinn Valdimar Adam fæddist Gullu og Kidda þann 19 júlí! Akkúrat mánuði á eftir verðandi stórvini sínum, Birni Rúnari, guttanum hennar Birnu. Svo er nú skólinn byrjaður aftur og tölvert annasamari en hann var í vor, veit ekki alveg hvernig ég á að jöggla þessu öllu saman, þetta hlýtur að reddast! Var ég svo búin að nefna það að ég plana að byrja aftur í sundi og fara í ræktina á Bjargi! Er það nokkur furða að ég eigi aldrei lausa stund þegar ég fylli daginn af öllu þessu? Annars sendi ég kveðjur nær og fjær! Knús og Kossar Gústa Blogglata-en-ekki-vinnulata San!
»
03.07.2009 23:37:14 / zetabeib
Jæja,Tíminn líður hratt á gervihnattaöld og það er komin Júlí og afmælið mitt alveg að detta inn! Ekki nema vika eftir af því að vera 25. Ég er búin að vera frekar busy síðan í lok Maí, fyrst í þremur vinnum, og nú í tveimur. Þannig að það hefur verið lítið um frí og minna um djamm. Kíkti aðeins á Kaffi Ak þarna 16 júní, og fór í roadtrip til Eskifjarðar í brúðkaupið hennar Ingunnar.Einnig er ég búin að vera einstaklega dugleg að lesa og finnst yndislegt að geta bara lesið mér til skemmtunar og ekki neinar námsbækur, er búin að vera á rosalegu lestrarfylleríi ef svo má að orði komast, er alltaf með bók við hönd ef ég er ekki að vinna! Það er svosem ekkert á döfinni nema smá afmælisgrill, ef ykkur vantar hugmyndir af afmælisgjöfum þá vantar mig bækur 5-18 af ísfólkinu, annars hitta fallega skrifuð kort alltaf í mark.Svo er litli uppáhaldsfrændi, hann Ísak Örn að verða 1 árs, daginn á undan mínu afmæli. Svo er Birna vinkona búin að koma litlum kút í heiminn og það styttist óðum í að Gulla Ásta eigi sitt barn, ég er mjög spennt yfir því öllu saman. Svo var ég að frétta að Sunna og Geiri eigi von á sínu seinna barni, sem er æðislegt. Þannig að börnin vaxa og dafna um allt! Annars sendi ég blómlegar kveðjur úr sumarhitanum á Akureyri!Knús og Kossar Gústa AfmælisSan
»
03.05.2009 23:36:08 / zetabeib
og þarmeð uppáhalds árstíminn minn! Þetta sumar verður ekki eins heitt og þessi 3 síðustu en það verður sko mikið fallegra! Ég hlakka mikið til að vera úti á palli, grilla, labba, hjóla, fara í sund, rúnta....já og vinna alveg heilan helling!Apríl var fínasti mánuður, ég vann eins og brjálæðingur í Vín og þess á milli var synt og chillað! Auk gríðar vel heppnaðs frænkukaffiboðs! Stærsti viðburður Maí, svona fyrir utan öll afmælin (Heiðdís, Sunna, Dísa Sys, Baldvin) er auðvitað JÚRÓVISION! Og nú verður sko haft gaman af þeim merkis viðburði, ég hef eytt þremur árum í því að vera umkringd Bretum og áströlum sem skilja ekki hversu mikil snilld þessi keppni er..en núna er ég komin aftur í faðm hinnar júrótrash elskandi þjóðar, Íslendinga!Þannig að ég efni til grillveislu og er búið senda þeim heppnu boð á facebook! Á boðstólnum verður sko lambakjöt og humar, auk kokteila, maruud og öllu því cheese sem maður þarfnast í geðveikina! Be excited.....be very excited! Ég byrja á Bakkahlíð þann 25 maí og í byrjun Júní flytur Gulla Sigga skvís inn til mín í Vallargerðið, er Berglind heldur á vit ævintýranna í Rvk! Þannig að það er sko nóg að gerast!Um helgina fór ég síðan til Þórhalls miðils sem sagði mér að einn daginn ætti ég eftir að eignast son og að við yrðum algjörar samlokur! Stuð! Hann sagði líka að ég væri með gott hjartarlag og að í haust myndi allt breytast hjá mér.....og svo vildi hann eitthvað tengja mig við Kópavog?! Einnig minntist hann á að ég ætti að vera þolinmóð og hætta að stressa mig á hlutunum! Þið kippið í mig ef ég er að því, ik!?  Þannig að það er allt gott að frétta úr mínu horni heimsins, verið góð við hvort annað! Knús og Kossar Gústa SumarSan!
»
10.04.2009 23:41:20 / zetabeib
... eða svo sagði í málshættinum sem var í litla nóaegginu mínu, sem ég fékk mér í vikunni!Annars er allt alveg ljómandi að frétta héðan af norðurslóðum. Ég er komin með alvöru sumarvinnu, á sambýli fyrir alzheimer sjúklinga í Bakkahlíð. Byrja þar í lok Maí, á meðan vinn ég hörðum höndum í Vín..við að búa til ís og afgreiða kökur & kaffi. Þar hefur verið nóg um að vera um Páskana og býst ég fastlega við því að næstu dagar verði eins annasamir! Ég fer auðvitað enn í sund en hef tekið mér pásu í ljósunum í bili, enda kortið mitt búið. Ég bíð spennt eftir hækkandi sól og hita, enda sumarbarn í hjarta og leiðist þessi endalausi snjór og kuldi! Ég er líka með augun opin fyrir vænlegum bílum til sölu enda er mig farið að langa í eins og eina sjálfrennireið! Annars skiptir það ekki svo miklu máli yfir sumartímann, maður getur svosem hjólað og labbað um allt!Famelían er hress, gamli í sjófríi, Magga full af æskufjöri og mútter alltaf hress og kát. Í Danmörku er vor og niceheit en Ísak litli er reyndar búin að ná sér í leiðinda kvef vírus og vonum við bara að hann hressist bráðum þessi elska!Á morgun, skal svo haldið á djammið með Öllu lovin, Bróa Bró og Strúnu stuð. Við ætlum í partý hjá Hörpu Reynis og verða þá höfrungar kátir! Ég hlakka mikið til, enda hef ég ekkert djammað síðan á þorrablótinu!Svo bíð ég spennt eftir því hvað kemur úr nr 4 Nóa páskaegginu mínu á sunnudaginn!Ég óska ykkur öllum Gleðilegra Páska! xoxoxKnús og KossarGústa VinnandiSan
»
24.03.2009 23:46:14 / zetabeib
Halló elskurnar! 
Beðið var um nýtt blogg og ég held það sé komin meira
en tími til! Margt hefur gerst siðan í byrjun mars..látum okkur nú sjá! Fyrir utan sund og ljósaferðir..þá var það allt þetta;
Í fyrsta lagi fékk ég smá afleysinga vinnu með mömmu á
vistinni, er á seinni vikunni minni þar! Við mæðgur erum í því að þrífa og ég
er mestmegnis að ryksuga...er komin með massa upphandsleggsvöðva eftir þetta!
Svo um leið og ein kemur..mætir önnur og ég fékk smá helgarvinnu í
blómaskálanum Vín og byrjaði í því núna um helgina! Ísinn minn er enn svolítið
skakkur...en þetta kemur..ég verð þarna alla páskana svona ef þið eruð að leita
að mér! 
Svo var aðalviðburður marsmánaðar auðvitað koma dönsku
fjölskyldunnar! Dísu, Ella og Ísaks sætasæta! Þau komu síðasta fimmtudag og
Ísak bræddi hjörtu hvert sem hann fór, bara með því að brosa! Hann er algjört
yndi og vill sko fá að kynnast manni aðeins áður en maður fær að koma nálægt
honum...fer varlega að fólki bara eins og skynsömum manni sæmir!
Skírnin var síðan á laugardeginum, Sigga, mamma
hennar Svönsu, var búin að gera þennan rosalega skvísukjól handa mér sem fékk
frumraunina sína þennan dag. Ég var einn skírnarvotturinn og stóð stolt og
fylgdist með Ísak, klæddur í flottan smoking, hegða sér ofboðslega vel meðan
presturinn skellti á hann vígða vatninu!
Hápunkturinn var fyrir mig, eftir að veislan var búin
og allir að ganga frá, en þá hlaut ég náð fyrir augum frænda míns og fékk að
halda á honum og syngja fyrir hann heillengi...jei!
Seinna um kvöldið var chill með Dísu sys, maður fær að gera það alltof sjaldan
þannig að maður fílaði það alveg í botn! 
Þannig að það eru gleðifréttir héðan að
norðan, margt í bígerð og maður er enn í sundi og chilli með stelpunum! Það er
fullt af fólki að koma í bæinn yfir páskana og eflaust mikil gleði framundan!
Myndin sem fylgir blogginu er auðvitað af mér og Ísak litla í góðu stuði!
Knús á línuna!
Gústa VinnandiSan

»
02.03.2009 01:09:58 / zetabeib
Yello! Jæja stúlkur og drengir, það kom actually slatti af kommentum á síðasta blogg, þannig að ég vitna í Margit Sandemo sem sagði..."er einhver þarna úti? Ég kýs að trúa því!"Látum okkur nú sjá, hvað hefur gerst í höfuðstað Norðurlands síðan ég ritaði síðast (eða reit síðast, eins og Baldvin sagði alltaf)! Bolludagurinn rann upp og ég tók mig til og bakaði mínar fyrstu vatnsdeigsbollur...og tókst svona ljómandi vel upp, þær fengu hrós frá öllum er snæddu! Öskudagurinn rann upp með fjölda barna hlaupandi um í frostinu, í mis-frumlegum búningum, einhvern veginn minnir mig að börn hafi lagt aðeins meiri metnað í sönginn svona í gamla daga (miðað við hljóðdæmin sem ég varð vitni að á Glerártorgi) og ættu börn virkilega að reyna að syngja Leonard Cohen?? Ég tók einnig smá syrpu í því að horfa á sjónvarpsþættina Veronica Mars og þótti mjög gaman að, enda þarf maður að vera frumlegur til að fylla dagana þegar maður er atvinnulaus og fær ekki einu sinni bætur!  Þær óléttu (Gulla og Birna) komu í siginn fisk og dásömuðu matinn, enda veislukostur! Svo gerðist Gulla sundfélagi minn á meðan Alla San spásseraði í Rvk, einnig fórum við Gulla í Jólasveinabrekkuna og endurvöktum okkar innra barn með smá snjóþotu-actioni!  Á laugardaginn hefði afasystir mín og ská-amma heitin, hún Góa, orðið 92 ára. Það var því við hæfi að ég fór í sveitina og við mæðgur fórum í gegnum gamlar myndir og dót sem hún átti, og rifjuðum upp gamlar minningar. Ég notaði tækifærið og lagaði til í skúffunum mínum, þeir sem til mín þekkja vita að ég er safnari mikill og sanka iðulega að mér hrúgu af dóti sem ég hef ekkert með að gera! Einnig endurreisti ég og raðaði upp kokteil glasa safninu mínu, sem er orðið ansi hreint veglegt! Ég held að sá tími nálgist þar sem ég þarf að fjárfesta í stórum glerskáp undir þetta allt saman!  Annars er allt rólegt, eitt smápróf í næstu viku, einnig verða drög lögð að nýjum kjól sem mun verða saumaður af mæðgunum Svönsu og Siggu. Þetta, ásamt sundi og atvinnuleit..já og svo byrjar hesthúsvaktin á ný þegar gamli heldur til hafs á ný! Já, líf mitt er ekkert ef ekki ríkt af smávægilegum atburðum!  Bestu kveðjur um öll lönd héðan að Norðan! Gústa MarsSan
»
17.02.2009 20:21:22 / zetabeib
Halló skralló! Fólk hefur apparently alveg gleymt þessu bloggi síðan ég sneri aftur á íslandsstrendur, spurning hvort að maður eigi að hætta þessu? En ég hugsa þó að ég loki ekki blogginu alveg strax, geymi það ef ske kynni að maður lendi í einhverjum ævintýrum, skv Stellu í Orlofi, þá gerast þau enn!Annars er voðalega lítið að frétta, ég er hress og búin að losa mig við kvefið sem gerði lélega árás í síðustu viku! Fer alltaf í sund 3var í viku og þykir gaman, hvern hefði grunað að það gæti verið svona ávanabindandi! Svo er maður að læra og brasa í og með, pabbi kemur heim í vikunni þannig að ég verð aftur bíllaus og fer af hesthús vaktinni! Annars hefur hesthúsbrasið gengið ágætlega, bara eitt hrossið fer í taugarnar á mér (það er að drepast úr frekju) & hestalyktina kannast maður svosem við heimanað! Fólk sem ég þekki ekki neitt heilsar mér, því ég er í bílnum hans gamla, maður auðvitað veifar því líka! Svo er Svansa búin að vera tíður gestur, hún er á hækjum þessa dagana, eftir fótafegrunar aðgerð! Þannig að maður er búin að snúast í kring um hana! Við vorum ma. með anti-valentínusarkvöld um helgina, þar sem við horfðum á myndir og vorum með góðan mat!Annars er allt gott að frétta, ég skellti mér í litun og klippingu & er svaka sæt! Vona að þið munið að kíkja við og kommenta!KnúsGústa SundSan
»
02.02.2009 20:01:29 / zetabeib
Hæhæ og hó!
Þá er komin mánudagur eftir skemmtilega helgi! Maður skellti sér auðvitað á Þorrablót á Laugardaginn, á Hrafnagili! Liðinn voru 3ár síðan maður fór síðast á Blót og var eftirvænting mín mikil & er mér ljúft og skylt að segja að Blótið stóð fyllilega undir þeim! Með skemmtilegri Blótum sem ég hef farið á og mitt best heppnaða eftir sameiningu! Maður dressaði sig upp & spasslaði í andlitið, skellti mér meira að segja í einn ljósatíma í síðustu viku! Tóti hennar Möggu var driver og fórum við á Jeppanum til að pláss að væri fyrir guðaveigar og þorramatinn! Eftir stórskemmtilegt borðhald, mögnuð skemmtiatriði, frábært hangikjöt og dásamlegan harðfisk var auðvitað stillt upp dansgólfinu! Við 19 sem vorum samankomin á Svertingsstaðaborðinu létum okkur nú ekki vanta og slettum vel og vandlega úr klaufunum, flottust voru þó líklega mamma & Tóti, Pétur frændi og Magga systir! Ég vil meina að ég og Jón frændi höfum verið ansi flott líka, hann dansaði meira að segja við bæði mig og Möggu í einu, og það með glans! Eftir dans, dufl og guðaveigar létum við systur gott heita, skruppum í Pizzu á tikktakk og fórum svo heim að sofa, vel sáttar með þetta stórskemmtilega Þorrablót! Hef ég heyrt ekkert nema af því góðar sögur, þannig að þetta verður að teljast stórvel heppnað! Annars er allt gott að frétta, fer í sund með Öllu núna 3var í viku & vinn í mínum málum! Bakið nánast alveg orðið gott & lærdómurinn tiltölulega auðveldur ennþá! Knús á ykkur öll nær og fjær! Gústa BlótsSan
»
27.01.2009 11:15:35 / zetabeib
Jæja! Lífið heldur áfram hérna á Akureyri! Ég er enn atvinnulaus og í húsmóðurhlutverkinu sem fyrr! Pabbi er farinn á sjóinn og ég því kominn á jeppann hans og búin að taka við í hesthúsunum! Það eru orðin ein 11 ár síðan ég var í hestamennsku & skrýtið að vera komin aftur í það að kemba, moka og gefa! En fínt að hafa meira að gera yfir daginn, svo er ég líka að læra og enn að berjast við lloyds banka í bretlandi um að fá peninginn minn sendan, sem er fáránlegt en gengur vonandi fljótlega! Til að toppa þetta allt saman, þá fékk ég í bakið á laugardaginn, ég er öll skökk og skæld og vona bara að ég rétti úr mér fyrir eitt skemmtilegasta djamm ársins, þorrablótið í sveitinni, sem haldið verður á laugardaginn næsta! Annars er allt gott að frétta, ég er hress og kát, sérstaklega þegar veðrið er gott & er komin með sundkort og við það að bæta sundferð inn á dagskrá dagsins! Hittumst í pottinum! Knús á línuna! xoxo Gústa HestaSan
»
15.01.2009 17:08:26 / zetabeib
Já góðann dag!
Í augnablikinu er ég heimavinnandi húsmóðir, í fjarnámi og með ungling á framfæri! Þetta er so far, búið að vera áhugaverð lífsreynsla! Ég hef til dæmis áttað mig á því hvernig mömmu leið þegar ég var unglingur! Ég hef áttað mig á því hversu mikið ímyndunarafl maður þarf til þess að vera frumlegur í eldamennskunni! Svo maður tali nú ekki um allan þvottinn og þrifin sem til þarf! Áðan hjálpaði ég svo til við stærðfræði heimadæmi.....ég er alveg jafn léleg í henni og ég var þá & það er alveg sama hvað kennararnir segja...maður þarf ekki að nota þáttun og algebru & svoleiðis kjaftæði eftir grunnskóla!
Fjarnámið byrjaði líka í vikunni, ég var ekki viss um hvernig ég höndlaði það að vera í skóla eftir öll þessi ár...en ég skemmti mér alveg stórvel við lesturinn, enda hef ég alltaf haft gaman af ensku og bókmenntum! Þannig að það lítur allt vel út!
Svo hefur maður verið í atvinnuleit, ekkert gerst í því so far, en maður heldur áfram og endilega sendið mér ábendingar...öll hjálp er vel þegin! Einnig tók ég mig til og las Twilight bókaseríuna í vikunni, 4 dodrantar...þetta var algjör snilld & hvern hefði grunað að ástir vampíra yrðu svona skemmtilegar! Annars er allt gott að frétta & ég er í ágætis fíling, fólk velkomið í heimsókn! Munið að kommenta! Knús og Kossar Gústa HúsmóðirSan
»
04.01.2009 16:29:05 / zetabeib
Gleðilegt 2009 allir nær og fjær!  Það er komið nýtt ár og Jólin svo að segja búin! Það er skrýtið að vera ekki að plana ferðina út í lönd á þessum tíma, heldur frekar að plana hvernig nýtt ár á að útleggjast! Ég fékk inn í HÍ, fjarnám, 3 áfangar, samtals 20 einingar! Þannig að ég hef það fyrir stafni ef mér mistekst að fá vinnu, sem er vissulega enn á dagskrá!  Ég bý ekki í sveitinni hjá mömmu, heldur í Vallargerðinu, íbúð Gústu móðursystur, og lít eftir Berglindi, stelpunni hennar, á meðan hún klárar síðasta árið sitt í grunnskóla. Þannig að ég mun væntanlega fá forsmekkinn af því hvernig það er að vera húsmóðir með ungling á framfæri! Einnig mun ég hjálpa pabba með hesthúsið, svona þegar hann er á sjónum, hann vonar að hjá mér vakni fyrrum ást á hestaíþróttum, ég vona bara að ég þurfi ekki að moka of mikinn skít!  Svo er meiningin að vera dugleg í ræktinni og sundi, ég er reyndar spenntari fyrir því síðara, en þetta er allt á dagskrá!  Svo þarf maður að hanga með stelpunum, vekja gamlar hefðir & starta einhverjum nýjum, börn eru á leiðinni bæði í ættinni og vinahópnum, þannig að það á eflaust eftir að spila stórt hlutverk á komandi ári! Vonandi verður þetta ár liflegt þó að maður sé á Akureyri, frekar en í London! Ég er amk bjartsýn og verð eflaust busy busy busy!  Látið endilega í ykkur heyra, ég er með sama gamla gsm-númerið og alltaf, auk þess sem hægt er að finna mig a fjésbók, myspace, msn og skype! No excuses!Já og það má alveg kommenta þó að maður sé á landinu!!!Knús úr raðhús-inu á Brekkunni! Gústa NorðlenskaSan
»
Síður: 1 2 3 ... 22
|
Heimsóknir
Í dag: 13 Alls: 85211
Talning
Eftir 125 daga
í ferð til London
|